Wednesday, July 15, 2009

Ingrid Cosmetics?

Einmitt það sem ég hugsaði, hvað er það??

Ég er nú auðvitað enn í sumarfríi en langaði bara rétt að segja ykkur frá einu litlu leyndarmáli.
Ég skrapp í Krónuna í Lindum í dag, sem er í sjálfu sér klárlega ekkert merkilegt nema fyrir þær sakir að ég rambaði fram á einhvern snyrtivörustand í miðri búðinni.
Ekki einu sinni á sama stað og snyrtivörurnar eru geymdar. Ég er náttúrulega bara þannig að ég verð alltaf að skoða svona standa..
Þetta eru víst pólskar vörur og svo hrikalega hrrrææbillegar að ég varð að kaupa smá og prófa.
Og ég meina það, haldið ykkur þegar ég segi ykkur frá verðunum!

Ég keypti mér undurmjúkt púðurmeik á 699.- Naglalakk á 469.- og Augnskuggapallettu með fjórum litum á 679.-
Prófaði púðrið og það virðist vera virkilega gott bara, nema það er svolítið mikil ilmefni í því. Augnskuggarnir lofa góðu en ekki prófað þá almennilega og naglalakkið verður prófað á morgun. Umbúðirnar eru furðulega fínar bara og úrvalið í þessum fína standi er bara alveg frábært. Sá þarna hræbillega maskara sem gætu lofað góðu sem og margar tegundir af augnblýöntum sem virtust vera virkilega mjúkir og fínir.
Maskararnir voru á innan við þúsundkall og blýantarnir í kringum 3-400kr.

Skoðið þetta dömur, Krónan í Lindum - Ingrid Cosmetics!

1 comment:

  1. Langaði bara að láta vita að ég meira og minna tæmdi Ingrid snyrtivörustandin í Lindunum!
    Ég þakka fyrir frábæra ábendingu enda verðin alveg hlægileg!
    Langaði að koma með komment á vörurnar sem ég keypti:
    maskarinn XXL er hreint útsagt frábær þó að það sé erfitt stundum að ná honum almennilega af. Maður er ekki að vera með vesen yfir því þar sem hann er á tæpar 800 krónur!

    Naglalakkið er mjög gott eins og þú sagðir.
    meikið er ekkert frábært en hentar vel þegar maður þarf að skipta yfir í meik sem er tóni dekkri yfir sumartímann, alveg ömurlegt að eyða 5 þúsund kalli í sumarmeik! ég tek það fram að meikið er á 500 kall, ég veit, algjört grín!!

    keypti einnig 2 augnblýanta og sólarpúður og minnir mig að augnblýantarnir hafi verið á tæpan 400 kall.

    ég endurnýjaði snyrtibudduna á 3000 kall sem er varla verðið á MAC meikinu mínu!
    ...og gæðin koma svo sannarlega á óvart!

    ReplyDelete