Saturday, July 18, 2009

Ágúst Glamour!


Já varð rétt að skjóta þessu að ykkur, fór í gær og kom auga á Glamour Uk útgáfuna fyrir ágúst. Fyrir 895.- færðu Benefit maskara og hreint ágætis tískukellingablað.
Ég samt var bara að kaupa samt maskarann, blaðið var aukreitis ánægja :)

Benefit finnast mér dásamlegar vörur nefnilega en fást því miður ekki á íslandi. Svo mér þóttu þetta afar góð kaup hjá mér!


Sá sem fylgir blaðinu er aðeins minni útgáfa en ég
prófaði hann um leið og ég kom heim og hann er geggjaður!


Annars er ég farin út að halda áfram að njóta sólarinnar! ( Að sjálfsögðu með sólarvörn!) :D

4 comments:

  1. uhhh hvar fæst þetta?

    ReplyDelete
  2. Örugglega í velflestum bókabúðum, keypti mitt þó í Griffli í Skeifunni :)

    ReplyDelete
  3. Frábært að heyra, ég fer beint þangað á morgun!
    Benefit eru mínar uppáhalds. Á einmitt von á feitri sendingu frá USA innan skamms :)
    Haltu endilega áfram þessu bloggi, hef mikið gagn og gaman af.

    kv. lesandi

    ReplyDelete
  4. Búin að kaupa blaðið og prófa maskarann, finnst hann algjört æði! Væri til í að prófa fleiri vörur frá Benefit... :)

    En getur þú mælt með einhverju góðu dagkremi (og næturkremi) fyrir normal/þurra húð á góðu verði? Nota alltaf krem sem kostar í kringum kr. 7000 en vantar eitthvað ódýrt og gott til að nota með... drýgja þetta aðeins:)

    ReplyDelete